Loading details…
Loading details…
Baraflokkurinn er sennilega ein þekktasta sveit Akureyringa frá níunda áratugnum, stofnuð seinni hluta árs 1980. Að sögn þeirra félaga var hún stofnuð af tómum leiðindum. Baraflokkinn skipuðu söngvarinn Ásgeir Jónsson, bassaleikarinn Baldvin H. Baldvinsson, bræðurnir Þór Freysson, gítar, og Jón Arnar Freysson, hljómborð og loks trommarinn Árni Henriksson. Sveitin þótti meira tónleikaband en ballhljómsveit og var tónlist þeirra félaga gjarnan líkt við tónlist David Bowie. Þeir áttu því kannski ekki í mörg hús að venda norðan heiða. Að áeggjan Bubba Morthens, þegar bandinu var boðið að hita upp á tónleikum Utangarðsmanna, sendu þeir demó af efni sínu til útgáfufyrirtækisins Steinars. Útgáfan munstraði sveitina á samning og kom fyrsta plata þeirra félaga út sumarið 1981. Þar var á ferð sex laga tólftommu plata sem vakti á þeim athygli enda var henni fylgt fast eftir með tónleikahaldi um land allt. Inn á milli spilamennskunnar var æft af kappi. Í miðjum klíðum urðu trommaraskipti og í stað Árna settist við settið 14 ára gamall Sigfús Óttarsson, sem starfað hafði með líttþekktu unglingarokkbandi sem nefndi sig ½ 7. Með þessa liðskipan hljóðritaði Baraflokkurinn sína fyrstu LP plötu, Lizt, fyrir páskana 1982 og kom hún út þá um sumarið. Þar vakti lagið I don't like your style almenna athygli á sveitinni og er eitt þeirra laga sem haldið hefur nafni hennar á lofti. Á þessari plötu er líka að finna lagið Motion, sem er einnig á plötunni Rokk í Reykjavík, en þar hafði lagið veri
I Don't Like Your Style
Bara flokkurinn
Motion
Bara flokkurinn
St. Keeps Crying
Bara flokkurinn
Wonderful Creation
Bara flokkurinn
Windows
Bara flokkurinn
Oriental Wild
Bara flokkurinn
Insult
Bara flokkurinn
Specialist
Bara flokkurinn
Mr. Penis
Bara flokkurinn
Money Talking Man
Bara flokkurinn